Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Taubleyjur
•
Sveinbjörn
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Gáfnaljósið mitt í þetta sinn er Arna Ýr Jónsdóttir. Arna er tveggja barna móðir og á hennar heimili ganga börn í taubleyjum þar til þau læra á koppinn. Þetta þýðir að af einhverri ástæðu hefur Arna ákveðið að það sé betra að nota ekki einnota bréfbleyjur (nema stundum samt) og velur frekar að díla við fjölnota kostinn ásamt öllu sem því fylgir. Ég var með talsvert magn af spurningum og Arna svaraði þeim öllum af einstakri snilld, enda snillingur og skemmtileg. Góða hlustun!
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson