Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Episodes
17 episodes
Þunglyndi
Flosi Þorgeirsson er gáfnaljós þáttarins. Allir þekkja einhvern sem glímir við þunglyndi. Sjálfur hef ég mjög yfirborðskenndan skilning á þessum geðsjúkdómi og finn fyrir miklum vanmætti þegar nákominn einstaklingur er í þunglyndisl...
•
34:36
Taugaáfall
Sylvía Briem Friðjónsdóttir er gáfnaljós þáttarins.Samkvæmt internetinu er "taugaáfall" ekki læknisfræðilegt hugtak. Stundum er orðinu flengt fram í ákveðnu kæruleysi þegar fólk er í raun að upplifa yfirþyrmandi atburði sem hafa ekki al...
•
27:33
Loftgæði innandyra
Ármann Halldórsson er Gáfnaljós þáttarins. Loftgæði innandyra eru flókin blanda af lífrænum og ólífrænum efnum eins og örverum, örveruögnum, eiturefnum, ofnæmisvökum og fleiru til. Inn- og útstreymi lofts, lifnaðarhættir og ástand ...
•
28:53
Dungeons & Dragons
Snæbjörn Ragnarsson (Bibbi) er gáfnaljós þáttarins. Flestir hafa heyrt talað um hlutverka- eða spunaleikinn Dungeons & Dragons (D&D) en þeir sem hafa aldrei spilað leikinn eru að öllum líkindum með ranghugmyndir um hvernig hann fe...
•
29:16
Nýsköpun
Georg Lúðvíksson er gáfnaljós þáttarins. Georg er hugbúnaðarverkfræðingur og er einn af stofnendum Meniga, lauk einnig MBA námi við Harvard háskólann með áherslu á nýsköpun (e. entrepreneurship) auk þess að hafa stofnað fleiri fyrirtæki.
•
29:51
Borgarlínan
Davíð Þorláksson er gáfnaljós þáttarins. Davíð sagði mér hvað er að fara fram á bak við tjöldin og hvað þarf til svo Borgarlínuna verði að veruleika. Í þessu spjalli var þorri spurninganna fenginn frá hlust...
•
28:47
Að búa til hlaðvarp
Óhefðbundinn þáttur. Í þetta sinn ég sit uppi með tóman stól á móti mér sem var alls ekki planið. Að búa til hlaðvarp hefur verið mikið lærdómsferli og eitt af því sem ég hef nú þurft að læra er að það er ekki nóg að gefa sér nokkra daga til að...
•
21:04
Peningaþvætti
Gáfnaljós þáttarins er Sigurður Páll Guttormsson og málefnið var valið af hlustendum á Skoðanasarpnum. Sigurður útskýrir í þessu stutta spjalli hverni þvættað fé er alltumlykjandi o...
•
25:21
Fasteignaverð
Gáfnaljósið í þetta skiptið er Karl Lúðvíksson, fasteignasali, eða Kalli Lú eins og margir kannast eflaust við hann. Mikill uppgangur hefur verið á fasteignaverði undanfarin ár í mjúku bóli lágra vaxta, en hvað gerist núna þegar kjörin eru komi...
•
26:25
Herratíska
Gáfnaljós þáttarins er Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Málefni "herratíska" er fyrsta málefnið sem fjallað er um í Gáfnaljósi sem kom frá hlustanda. Húrra fyrir því, vegna þess að mér hefði ekki dottið þetta málefni í h...
•
23:09
Taubleyjur
Gáfnaljósið mitt í þetta sinn er Arna Ýr Jónsdóttir. Arna er tveggja barna móðir og á hennar heimili ganga börn í taubleyjum þar til þau læra á koppinn. Þetta þýðir að af einhverri ástæðu hefur Arna ákveðið að það sé betra að nota ekki einnota ...
•
19:49
Bandarískur fótbolti
Þorkell Magnússon er gáfnaljósið mitt í þættinum. Þorkell og félagar hans í Tíu Jördunum eru miklir áhugamaenn um bandarískan fótbolta en í hlaðvarpsþáttunum þeirra er allt sem viðkemur bandar...
•
24:16
Geðhvörf
Gáfnaljós þáttarins er Davíð Ágústsson. Davíð er mágur minn og hann er líka með geðhvörf. Í þættinum segir hann mér frá því hverskonar rússíbani það er að flakka milli oflætis (maníu) og þunglyndis. Hann sagði mér hvað hefur áhrif á þessa hring...
•
22:55
G-bletturinn
Gáfnaljós þáttarins er Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur og kynlífsráðgjafi. Það er komið að því að gera G-blettinum skýr skil. Áslaug gaf mér ómetanleg svör við spurningum eins og "eru allir með G-blett?", "hvernig framkallar maður fullnægi...
•
21:26
Stelpur með ADHD
Stella Rún Steinþórsdóttir er gáfnaljós þáttarins. Við Stella töluðum um hvernig það er að greinast með ADHD á fullorðinsárum og hversu mikill munur er á einkennum þess hjá stelpum og strákum. Þá kom líka fram að greiningarferlið er sniðið að e...
•
21:08