Gáfnaljós
Gáfnaljós
Nýsköpun
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Georg Lúðvíksson er gáfnaljós þáttarins. Georg er hugbúnaðarverkfræðingur og er einn af stofnendum Meniga, lauk einnig MBA námi við Harvard háskólann með áherslu á nýsköpun (e. entrepreneurship) auk þess að hafa stofnað fleiri fyrirtæki.
Georg deilir góðfúslega af nýsköpunarreynslu sinni í stuttu spjalli, en við ræddum m.a. hvaða mítur eru í umtali um nýsköpun í dag, hvað þarf til þess að láta góðar hugmyndir verða að góðum lausnum, hvað ber að forðast eins og heitan eldinn í nýsköpun og margt fleira sem kom skemmtilega á óvart.
Ef þú ert að burðast með nýskapandi lausn í huganum er þetta þáttur fyrir þig!
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson