Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Bandarískur fótbolti
•
Sveinbjörn
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Þorkell Magnússon er gáfnaljósið mitt í þættinum. Þorkell og félagar hans í Tíu Jördunum eru miklir áhugamaenn um bandarískan fótbolta en í hlaðvarpsþáttunum þeirra er allt sem viðkemur bandarískum fótbolta krufið og rökrætt.
Í þættinum leitumst við Þorkell við að svara grundvallar spurningum um íþróttina og freista þess svo að auka skilning okkar allra á því hvers vegna þessi furðulega íþrótt er svona hryllilega vinsæl.
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson