Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Stelpur með ADHD
•
Sveinbjörn
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Stella Rún Steinþórsdóttir er gáfnaljós þáttarins. Við Stella töluðum um hvernig það er að greinast með ADHD á fullorðinsárum og hversu mikill munur er á einkennum þess hjá stelpum og strákum. Þá kom líka fram að greiningarferlið er sniðið að einkennum stráka og stelpur með ADHD eiga það til að týnast í kerfinu.
Þess vegna kynnti Stella mig fyrir Söru - stelpu með ADHD, frumkvæðisverkefni sem ætlað er að finna týndu stelpurnar.
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson