Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Borgarlínan
•
Sveinbjörn
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Davíð Þorláksson er gáfnaljós þáttarins. Davíð sagði mér hvað er að fara fram á bak við tjöldin og hvað þarf til svo Borgarlínuna verði að veruleika. Í þessu spjalli var þorri spurninganna fenginn frá hlustendum af Skoðanasarp Gáfnaljóss á Facebook, en það er mikið framfararspor í þróun þáttarins.
Í þættinum svarar Davíð spurningum frá mér og hlustendum af kostgæfni og tókst mjög vel til við að gera Borgarlínunni skýr skil og hvernig hún kemur til með að gera höfuðborgarsvæðið að betri borg.
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson