Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Herratíska
•
Sveinbjörn
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Gáfnaljós þáttarins er Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Málefni "herratíska" er fyrsta málefnið sem fjallað er um í Gáfnaljósi sem kom frá hlustanda. Húrra fyrir því, vegna þess að mér hefði ekki dottið þetta málefni í hug án þín, kæri hlustandi.
Gummi settist óaðfinnanlega niður með mér til að tala beint út um hvað verður töff í ár, hvað er ekki lengur töff og af hverju það er gott að vera töff. Mjög skemmtilegt samtal við mjög sjarmerandi mann.
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson