Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Loftgæði innandyra
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Ármann Halldórsson er Gáfnaljós þáttarins.
Loftgæði innandyra eru flókin blanda af lífrænum og ólífrænum efnum eins og örverum, örveruögnum, eiturefnum, ofnæmisvökum og fleiru til. Inn- og útstreymi lofts, lifnaðarhættir og ástand fasteigna hefur allt áhrif á loftgæðin okkar og Ármann fer vel yfir hvernig þetta allt saman virkar og hvað við getum gert til þess að hámarka loftgæði heimafyrir.
Sannarlega fræðandi og eiginlega mjög nauðsynlegt samtal sem ég vona að nái til sem flestra heimila!
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson