Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Fasteignaverð
•
Sveinbjörn
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Gáfnaljósið í þetta skiptið er Karl Lúðvíksson, fasteignasali, eða Kalli Lú eins og margir kannast eflaust við hann. Mikill uppgangur hefur verið á fasteignaverði undanfarin ár í mjúku bóli lágra vaxta, en hvað gerist núna þegar kjörin eru komin á hvolf? Hækkar markaðverð fasteigna ef búið er að fara í framkvæmdir? Getur fasteignaverð lækkað? Ekki stóð á svörunum. Góða hlustun!
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson