Gáfnaljós
Gáfnaljós er hlaðvarp fyrir forvitið fólk. Þættirnir snúast um að fá framúrskarandi fólk í stutt spjall til að svara spurningum um málefni sem flestir kannast við en vita sáralítið um. Markmið þáttanna er að hafa umræður hnitmiðaðar og á mannamáli."Gáfnaljós" er nafnorð í hvorugkyni sem á tengingar við um 200 hugtök í íslenskri tungu, þar á meðal dómgreind, snillingur, séní og bráðskýr. Allt eru þetta eftirsóknarverðar dyggðir, og það er fagnaðarefni þegar þetta afgerandi fólk lætur gáfnaljós sitt skína.
Gáfnaljós
Forritun
•
Sveinbjörn
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Sara Árnadóttir er gáfnaljós þáttarins. Hún er forritari og vinnur t.d. við að búa til gervigreind sem ætlað er að gera daglegt líf auðveldara og betra. Hún útskýrði líka fyrir mér að forritun er ekki eins flókin og ég hélt og að forritarar verða að vera fjölbreyttur hópur fólks til að skrifa góðan hugbúnað.
Skoðanasarpur Gáfnaljóss er aðhaldsvettvangur hlustenda þáttarins á Facebook
Stef: When I'm Small með Phantogram
Umsjón: Sveinbjörn Ingi Grímsson